Tuesday, 13 April 2010

Vorið er komið og grundirnar gróa...

Ég bara hreinlega varð að láta heyra í mér :)

Mamma, pabbi, Andrés og Sæja yfirgáfu okkur hina fjölskyldumeðlimina á páskaga. Það verður nú að viðurkennast að það láku nokkur tár, en við tókum bara vel á því og Stefán mágur og Kristján vinur hans elduðu þennan líka geðveika kvöldmat handa okkur á páskadag, þar sem við drukkum smá af hvítvíni og bjór og cider ;) enda hress og skemmtileg :)
Á annan í páskum höfðum við það bara kósý og fengum svo fullt af fólki í mat um kvöldið. Svo skutlaði Oddný mér niður í skóla og ég taldi mig nú aldeilis tilbúna til að takast á við skólann eftir langt og gott frí...
En þriðjudagurinn, miðvikudagurinn og fimmtudagurinn voru nú bara ansi erfiðir og ég hef líklega aldrei saknað mömmu og pabba svona mikið...en á föstudaginn fór ég til Oddnýjar aftur og ætlaði að stoppa þar fram á laugardag því þá átti aldeilis að taka á því í "fertugs" afmæli í skólanum, svona þema partý....en nei vakna ég ekki eldsnemma á laugardagsmorguninn með ælupestina...FRÁBÆRT...
Ekki biðum mín skemmtileg skilaboð þegar ég rölti niður, nei þar sat Oddný í sófanum og sagði mér að Stefán mágur hefði lent í bílveltu og væri upp á spítala, en það var nú í lagi með hann þannig lagað, var svoldið aumur í öllum skrokknum og bíllinn ónýtur. Þannig að ég tók því bara róleg allan laugardaginn og lá í sófanum að drepast í maganum langt fram eftir degi, Stefán bara hálfur maður og Oddný eithvað slöpp, aldeilis ástand á einu heimili. En við rifum okkur nú upp og skelltum okkur til vinafólks sem var búið að bjóða okkur í hamborgaraveislu :) Ég hélt ég væri orðin ótrúlega góð og borðaði eins og ég mögulega gat en þegar ég kom heim var ég að drepast í maganum. Ég horfði á söngkeppni framhaldsskólanna með Stefáni og hafði það kósý. Sunnudagurinn var bara letidagur. Við Oddný röltum í búðina og keyptum í matinn, áður en við lögðum af stað í búðina settum við deig í pizzasnúða í hefingu og ætluðum svo að baka þegar við komum heim. En þegar við komum heim þurftum við að skjótast yfir í næsta hús til að fá eithvað lánað og við settumst aðeins niður þar í garðinum í góða veðrinu....
En þetta stopp varð aðeins lengra en við ætluðum því það endaði með nágrannagrilli og kósýheitum og þegar við komum heim eftir kvöldmatinn var deigið farið að flæða upp úr skálinni....flott stelpur ;) En Oddnýju tókst að gera þessa frábæru snúða :)
Svo tók ég strætóinn niður í skóla á mánudagsmorgun og byrjaði nýja viku :)
Ég er ekki frá því að vorið sé komið og var smá vorfílingur í manni, ég byrjaði á því að fara að lyfta klukkan hálf 10, svo var það fótboltaæfing eftir hádegi, röltum í búðina eftir skóla og fór svo á fyrstu æfinguna með Skovbakken um kvöldið :) ótrúlega gaman. En ég varð svolítið hissa þegar við komum upp á völl...það var MALARVÖLLUR...ég hef ekki spilað á möl síðan gamli malarvöllurinn í Borgarnesi var ;) en við byrjum nú á grasi í næstu viku svo þetta er í góðu lagi.
Í dag var nú ekki verra veður, dagurinn byrjaði á því að ég átti þrif vakt í skólanum klukkan 7 og þurfti að ryksuga allar skólastofurnar (mæli ekki með því að byrja dag svona), svo skellti ég mér á blakæfingu. Eftir hádegi var það Go'stil og við horfðum á einhvern þátt um danska listamenn. Þegar þessi þáttur var búinn áttum við annað hvort að taka strætó eða hjóla niður í bæ því við áttum að vera viðstödd opnum Globetown verkefnisins sem krakkar hérna í skólanum standa að og snýst um að styrkja börn í afríku. Ég hjólaði auðvitað í góðaveðrinum niður í bæ og fékk mér ís og sat úti í sólinni, svo hjóluðum við heim og við íslensku stelpurnar skelltum okkur út að hlaupa í góða veðrinu. Og ég íslendingurinn er eldrauð í framan eftir sólina þessa tvo daga og finnst það bara ekkert leiðinlegt ;) þetta veður hérna er einsn og ágætis sumardegi á Íslandi :) ekki að hata það :)

En ég læt heyra í mér síðar

5 comments:

  1. FRábært að heyra að þessi vika er skárri en sú síðasta. Þú klárar þetta og saknar okkar ekkert mikið þegar frá líður hér er rigning og rok svo þú skalt njóta þess að vera í sólinni.
    kveðja frá okkur öllum Mamma.

    ReplyDelete
  2. Hey, þarftu bara að þrífa einn morgun eða ? :o


    - Margrét Alda sem kemur til Århus í næstu viku :D

    ReplyDelete
  3. nei ég þarf að þrífa alla vikuna :)
    - hressandi og skemmtilegt, og ég hlakka til að sjá þig eftir örfáa daga ;)

    Alla

    ReplyDelete
  4. Haha, ég þurfti að þrífa í mánuð, hvert period ! Svakalegt stuð alveg ! :D

    ReplyDelete
  5. hahaha gott á þig :p mér finnst fínt að hafa þetta bara viku, hins vegar þarf ég að taka eldhúsvaktir, tvö period, er sem sagt búin að taka eina viku og þarf svo að taka eina viku aftur fljótlega! Eldhúsvaktir eru alveg það leiðinlegasta sem hægt er að gera þarna!

    ReplyDelete